Núverandi flutningslagnir þar sem þær liggja til norðurs í steyptan stokk undir Suðurlandsveg. Nýja lögnin verður lögð vestan við þær í sama stokk (hvítskyggt svæði). Mynd: ON/Mannvit

Héðinn leggur nýja 4,5 km flutningsæð til að auka rafmagns- og hitaveituframleiðslu Hellisheiðarvirkjunar

Framkvæmdir eru að hefjast við nýja 4.450 metra langa flutningsæð fyrir gufu frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar í Sveitarfélaginu Ölfusi. Markmiðið er að nýta fyrirliggjandi borholur við Hverahlíð til að afla uppbótargufu og skiljuvatns til rafmagns- og hitaveituframleiðslu fyrir Hellisheiðarvirkjun. Jafnframt er gert ráð fyrir þeim möguleika til framtíðar að tengja borholur sem verða boraðar síðar

ON Power ohf. hefur samið við Héðinn hf. um þessar umfangsmiklu framkvæmdir. Verkið felur í sér alla nauðsynlega jarðvinnu, pípulagnavinnu, raflagnavinnu og byggingarvinnu og mun fjöldi undirverktaka koma að verkinu að sögn Rögnvaldar Einarssonar, framkvæmdastjóra Héðins.

Nýja veitulögnin, Hverahlíðarlögn II, mun liggja við hlið fyrirliggjandi skiljuvatns- og gufuaðveitulagna frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar. Hún mun að mestu vera lögð ofanjarðar en einnig í fyrirliggjandi steypta stokka í gegnum ás sunnan þjóðvegar og undir Suðurlandsveg. Framkvæmdin verður að mestu á þegar röskuðum svæðum en heildarlengd nýrra vegslóða verður um 1,8 km. Áætlað flatarmál óraskaðra svæða sem munu raskast vegna framkvæmdarinnar er 10.800 fermetrar sunnan Suðurlandsvegar og 5.400 fermetrar norðan vegar. Áhersla verður lögð á góðan frágang og endurheimt raskaðra svæða.

Hverahlíðarlögn II verður, líkt og núverandi gufuaðveituæð, einn metri að þvermáli og á steyptum undirstöðum. Rögnvaldur segir að fimmtán metra löng rör verði notuð í lögnina, en það gerir um 300 stykki af þessum stóru rörum.

„Hver samskeyti eru hringsoðin á staðnum sem þýðir að okkar fólk verður búið að sjóða um það bill einn kílómetra í verklok,“ segir Rögnvaldur.

Undirverktakar Héðins við verkið eru:

Altac Artic – Pípulagnir
Árvirkinn – Rafmagn
Fossvélar – Jarðvegsframkvæmdir
Ísloft – Einangrun og álklæðning
Langeldur – Steypt Mannvirki
Héðins Hurðir – Iðnaðarhurðir

Hér er hlekkur á frétt Vísis um þessar framkvæmdir.

Deildu þessari frétt

Sendu okkur línu

Fylltu út formið

Takk fyrir að hafa samband við Héðinn. Við munum hafa samband fljótlega.
Því miður kom upp villa þegar þú sendir skilaboðin. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.