
Orka og Iðnaður
Hönnun, smíði og þjónusta fyrir orku- og stóriðju
Héðinn þjónustar orkuver, álver og önnur iðnfyrirtæki með smíði, lagnavinnu, vélaviðgerðum ásamt fastri starfstöð á Grundartanga.
Verkefnastjórnun með áherslu á þarfir og áætlanir viðskiptavina
Héðinn starfar með sumum af kröfuhörðustu fyrirtækjum landsins og leggur áherslu á að standast áætlanir. Við smíðum og setjum upp lagnir, stálvirki og búnað fyrir orkuframleiðslu og sinnum vélaviðgerðum þar sem vikmörk og áreiðanleiki skipta miklu máli.
Á Grundartanga höldum við úti starfstöð sem starfar daglega inni í álverinu og járnblendiverksmiðjunni. Sú nálægð tryggir skjót viðbrögð við viðhaldi, uppfærslum og smíði án þess að bíða eftir að utanaðkomandi verktaki komi sér á staðinn.
Verksvið
Hvar Héðinn starfar í orku og iðnaði
Smíði, lagnavinna og vélaþjónusta fyrir iðnað sem gengur allan sólarhringinn.
Lagnavinna, smíði búnaðar og vélavinna fyrir jarðvarma og aðra orkuframleiðslu. Frá lagnakerfum og stálvirkjum í smíði, uppsetningu, viðhalds og viðgerða á mikilvægum orkuframleiðslubúnaði.
- Smíði og uppsetning lagna
- Varmaskiptar, afloftarar og gufuskiljur
- Verkefnastýring og stjórnkerfi
Uppfærslur og viðhaldsvinna fyrir álver og járnblendisverksmiðjur. Með fastri starfstöð á Grundartanga tryggjum við skjót viðbrögð og gæði þjónustunnar.
- Teymi á staðnum á Grundartanga
- Viðhald og viðgerðir
- Hönnun og verkefnastýring
Uppsetning og viðhaldsþjónusta fyrir gufutúrbínur, rafala og tengdan búnað. Samstarf okkar við Sulzer tryggir aðfangakeðju og þjónustustig á heimsmælikvarða.
- Túrbínur og rafalar
- Ástandsgreining og ráðgjöf
- Viðgerðir og endurnýjun
Viðhaldsteymi á staðnum þar sem verksmiðjan gengur
Stóriðja hefur ekki efni á að bíða. Teymi Héðins á Grundartanga starfar inni í verksmiðjunum sjálfum, sem þýðir að viðhald, viðgerðir og smíði geta hafist strax þegar búnaður þarfnast athygli. Að baki því teymi stendur fullbúið verkstæði í Hafnarfirði fyrir rennismíði, stálsmíði og vinnslu á Hardox slithlutum.
Með áherslu á nýsköpun nýtum við þrívíddartækni og fjarþjónustu til að tryggja öruggustu og bestu lausnina fyrir viðskiptavini. Forsmíði verður æ algengari þar sem við getum skannað og smíðað mikið af búnaði áður en stoppað er.
Segðu okkur frá orku- eða iðnaðarverkefninu þínu
Frá lögnum og stálvirkjum yfir í viðhald á staðnum og túrbínuviðgerðir. Héðinn sameinar þjónustu á vettvangi og verkstæðisgetu fyrir starfsemi sem gengur allan sólarhringinn.
