About Jón Kaldal

This author has not yet filled in any details.
So far Jón Kaldal has created 16 blog entries.

Héðinn lýkur við uppsetningu á neyðarbúnaði við Fitjar og Rockville

30/12/2025|

Héðinn lýkur við uppsetningu á neyðarbúnaði við Fitjar og Rockville Nú í desember luku starfsmenn Héðins við að setja upp neyðarkyndistöðvar á Fitjum við Reykjanesbæ. Áður hafði sambærilegum búnaði verið komið upp við Rockville. Kyndistöðvarnar eiga að koma í veg fyrir rof á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum einsog gerðist þegar þegar hraunstraumur frá Sundhnúksgígum tók sundur lagnir við Svartsengi í febrúar 2024 og íbúar voru heitavatnslausir í fjóra kalda sólarhringa. Myndirnar sem hér fylgja sýna mannskap okkar að stöfum við að setja upp búnaðinn við Fitjar fyrr í mánuðinum. Héðinn smíðaði fjögur sett af varmastöðvum sem hafa [...]

Héðinn Service Portal Í Fiskifréttum

13/11/2025|

Héðinn Service Portal í Fiskifréttum Daníel Freyr Hjartarson, yfirmaður nýsköpunar og þróunar hjá Héðni, er í ítarlegu viðtali við Fiskifréttir um nýsköpunarverkefnið Héðinn Service Portal (HPS), sem er gagna- og upplýsingageymsla með notkunarleiðbeiningum, tækniteikningum og viðhaldsáætlunum frá framleiðendum búnaðar fyrir þá sem koma að viðhaldi skipa og verksmiðja. Í HPS má til dæmis skoða fyrri verkskýrslur og sjá hvað var síðast gert við þegar bilun kom upp. Hægt er að opna þrívíddarlíkan af svæðum skipa og skoða sig um í HPS með svokölluðum þjónustugleraugum og fá aðstoð frá þjónustusérfræðingum Héðins í rauntíma. Þetta er mikilvægt þegar upp kemur bilun [...]

Morgunblaðið fjallar um stærsta verkefni Héðins á þessari öld

08/11/2025|

Morgunblaðið fjallar um stærsta verkefni Héðins á þessari öld Sjávarútvegsfréttahluti Morgunblaðsins, 200 mílur, hefur birt skemmtilega umfjöllun um verksmiðju norska mjöl- og fiskolíuframleiðandands Prima Protein sem var hönnuð af Héðni. „Verksmiðjan við Egersund er stærsta einstaka verk Héðins frá aldamótum. Þetta var í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem ný fiskimjölsverksmiðja af þessari stærðargráðu var byggð frá grunni en ekki verið að bæta og breyta gömlum verksmiðjum eins og er yfirleitt venjan,“ segir Eðvarð Ingi Björgvinsson, framkvæmdastjóri Héðins í frétt 200 mílna. Tilefnið var að Prima Protein var tilnefnt í hóp fimm efstu fyrirtækja í vali norsku Samtaka [...]

Héðinn designs for Havsbrún in the Faroe Islands

14/06/2023|

Héðinn hannar fyrir Havsbrún í Færeyjum Héðinn hefur gengið frá samkomulagi við Havsbrún í Færeyjum um umfangsmiklar viðbætur við fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins við Fuglafjörð á austurströnd Eysturoy. Héðinn tekur að sér hönnun á blöndunar- og geymslusílóum ásamt flutningsbúnaði auk hönnunar á steyptum undirstöðum fyrir sílóin. Havsbrún er dótturfélag Bakkafrost sem meðal stærstu framleiðenda heims á eldislax og stærsta fyrirtæki Færeyja. Héðinn mun hanna átta síló sem eru 10 metrar í þvermál og 40 metra há ásamt flutningskerfi að og frá sílóunum. Samtals munu sílóin vega 600 tonn tóm og 15.000 tonn þegar þau eru fullestuð af mjöli. Nánast öll framleiðsla [...]

Héðinn laying a new 4.5 km transmission pipeline to increase electrical and district‑heating production at the Hellisheiði Power Plant.

14/06/2023|

Héðinn leggur nýja 4,5 km flutningsæð til að auka rafmagns- og hitaveituframleiðslu Hellisheiðarvirkjunar Framkvæmdir eru að hefjast við nýja 4.450 metra langa flutningsæð fyrir gufu frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar í Sveitarfélaginu Ölfusi. Markmiðið er að nýta fyrirliggjandi borholur við Hverahlíð til að afla uppbótargufu og skiljuvatns til rafmagns- og hitaveituframleiðslu fyrir Hellisheiðarvirkjun. Jafnframt er gert ráð fyrir þeim möguleika til framtíðar að tengja borholur sem verða boraðar síðar ON Power ohf. hefur samið við Héðinn hf. um þessar umfangsmiklu framkvæmdir. Verkið felur í sér alla nauðsynlega jarðvinnu, pípulagnavinnu, raflagnavinnu og byggingarvinnu og mun fjöldi undirverktaka koma að verkinu að [...]

The Norwegian ambassador visits Gjáhella

14/06/2023|

Norski sendiherrann í heimsókn við Gjáhellu Sendiherra Noregs á Íslandi, Aud Lise Norheim, kom í heimsókn til okkar á dögunum og skoðaði starfsemina við Gjáhellu. Rögnvaldur Einarsson framkvæmdastjóri Héðins og Eðvarð Ingi Björgvinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri, lóðsuðu sendiherrann um smiðjurnar. Héðinn hefur um langt árabil verið með mikil umsvif í norskum fóður- og fiskimjölsiðnaði. Fyrirtækið hefur smíðað og reist tanka og geyma í Noregi ásamt því að stýra flutningi á eldri geymum. Aud Lise er með reyndustu diplómötum Noregs en hún hafði meðal annars gegnt stöðu sendiherra Noregs í Bangladesh, Líbanon og Íran áður en hún kom til Íslands árið 2019. [...]

Tanks dismantled and transported by sea in Norway

12/06/2023|

Tankar felldir og fluttir sjóleiðis í Noregi Sumarið 2022 tók Héðinn að sér að fella og flytja mjöltanka í Grønehaugen, við Egersund á suðvestur-strönd Noregs. Hver tankur var 80 tonn, 30 metra að hæð og 7,6 metrar að þvermáli. Voru þeir fluttir á flotpramma yfir fjörðinn til Ryttervik þar sem þeim var breytt í tanka fyrir fiskiolíu. Stórir geymslutankar hafa verið á verkefnaskrá Héðins allt frá upphafsárum fyrirtækisins. Árið 1927 réðust Héðinn og Hamar í stærsta verkefni sem íslenskar vélsmiðjur höfðu tekið að sér fram að þeim tíma. Var þetta smíði olíugeyma fyrir nýja olíugeymslustöð Shell HF sem reis [...]

A T-Drill machine that punches holes in stainless steel pipes and pulls outlets from them.

01/02/2023|

T-drill vél sem gatar ryðfrí rör og dregur stúta út úr þeim Ör vöxtur nýsköpunarfyrirtækisins Vaxa Technologies hefur áhrif víðar. Meðal annars hjá okkur hér hjá Héðni en við höfum  fjárfest í sérstakri „borvél“ vegna vinnu við íhluti í vélar sem munu framleiða smáþörunga, smekkfulla af próteinum og næringarefnum í verksmiðju Vaxa í Jarðhitagarði Orku Náttúrunnar við Hellisheiðarvirkjun. Rögnvaldur Einarsson, framkvæmdastjóri Héðins, segir að vélin, sem er svokölluð T-drill vél, sé ánægjuleg viðbót við vélaflóru fyrirtækisins og sé sú eina sinnar tegundar á Íslandi. „Forsenda kaupanna er fyrst og fremst þetta verkefni fyrir Vaxa Technologies. Umfangið hjá þeim er [...]

Eðvarð Ingi Björgvinsson returns to Héðinn

01/02/2023|

Eðvarð Ingi Björgvinsson kemur heim til Héðins Eðvarð Ingi Björgvinsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Héðins. Eðvarð þekkir vel til hjá fyrirtækinu en undanfarin ár hefur hann verið framkvæmdastjóri dótturfélags þess Héðinshurða og þar áður stýrði hann Kongsbergdeild Héðins frá árinu 2016 til 2020. Eðvarð mun starfa við hlið Rögnvaldar Einarssonar núverandi framkvæmdastjóra fram að áramótum og tekur þá að fullu við starfi framkvæmdastjóra. „Við fögnum því að fá Edda heim í móðurfélagið. Hann gjörþekkir hvern krók og kima í starfseminni,“ segir Rögnvaldur Einarsson, framkvæmdastjóri Héðins. Vélvirkjameistari og framhaldsskólakennari „Það er mikill heiður að fá að leiða Héðin inn í [...]

Distillers with 20 km of pipes

07/12/2022|

Eimarar með 20 km af rörum Á undanförnum dögum hafa tvö risastór eimingartæki verið sett upp í nýrri verksmiðju sem er að taka á sig mynd hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað. Í eimingartækin voru þrædd rör sem myndu teygja sig um tuttugu kílómetra ef þau væru lögð saman. Búnaðurinn var hannaður og smíðaður frá grunni hjá Héðni og tók það starfsfólk fyrirtækisins um þrjá mánuði að þræða rörin í tankana og sjóða föst. Rörin voru soðin beggja vegna á platta og alls voru þetta um og yfir fimm þúsund suður. Fyrst var punktsoðið af starfsmanni en svo tók róbóti við [...]

Go to Top