Eddy Dryer
Framtíðin í þurrktækni
Byltingarkennd nýsköpun í diskaþurrkun sem byggir á spantækni. Eddy þurrkarinn nær yfir 98% orkunýtingu á 60% minna gólfplássi. Fyrir fiskeldi fæst hann sem fullprófuð eining á fleti ásamt þeim aukahlutum sem þarf fyrir meðhöndlun á slógi og mykju.

Spanhitun í stað gufukerfa
Eddy Dryer notar spanhitun til að ná einstakri orkunýtingu, stýrieiginleikum og einföldum rekstri. Með því að sleppa gufukerfum og stýra hitastigi hvers disks og svæðis af nákvæmni bætir kerfið gæði afurðarinnar og lækkar um leið rekstrar- og viðhaldskostnað.
Spanþurrkun Héðins hefur gefið mjög góða raun við vinnslu hliðarstrauma frá landeldisstöðvum, meðal annars við þurrkun á laxamykju.
Spanþurrkun með diskum
Það sem spanþurrkun skilar
Eiginleikar Eddy þurrkarans og ávinningurinn sem hann skilar í samanburði við hefðbundna gufuþurrkun.
Samanborið við <70% í hefðbundnum gufukerfum.
Minni plássþörf og einfaldari verksmiðja.
Nákvæm stýring á hverjum disk og svæði.
Hámarkar þurrkunarferilinn í gegnum allt ferlið.
Rauntímabestun og jafnari afurðagæði.
Engar kröfur um þrýstihylki og engin gufukerfi.
Fullprófuð fleti tilbúin til notkunar
Fyrir fiskeldi erum við með stöðluð fleti til meðhöndlunar á mykju, slógi og dauðfiski, fullprófuð og tilbúin til notkunar.
Staðlaða mykjuvinnslan annar eldisstöðvum sem vinna allt að 12.000 tonn á ári. Kerfið tekur við mykju með 8-10% þurrefni og skilar henni sem 85-95% þurrefni allt eftir óskgildi notendans. Kerfið getur gengið allan sólarhringinn og kemur með stjórnkerfi og fjartengingu.

Tæknilýsing staðlaðra eininga
Eddy Dryer mykjuvinnsla á fleti
| Eiginleiki | Staðlaða einingin okkar |
|---|---|
| Afköst | Fyrir eldisstöðvar sem vinna allt að 12.000 t/ári |
| Mál | 12,8 m × 2,3 m × 3,1 m |
| Þurrefni inn/út (%) | 8-10% þurrefni inn, 85-95% þurrefni út |
| Varmaendurnýting | Með eða án varmaskiptis fyrir hráefnisinntak |
| Uppsett afl | 385 kW (400 V) |
| Rekstur | Allan sólarhringinn með stjórnkerfi og fjartengingu |
Bókaðu kynningu og mat á þínu ferli
Hafðu samband til að fá kynningu og mat á möguleikum í þínu þurrkunarferli.
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður | +354 569 2100 | hedinn@hedinn.is
