About Jón Kaldal

This author has not yet filled in any details.
So far Jón Kaldal has created 16 blog entries.

100th Anniversary Celebrated with Book Release

01/11/2022|

100 árum fagnað með útkomu bókar Í tilefni af aldarafmæli Héðins er komin út bókin Héðinn í 100 ár - Svipmyndir 1922 til 2022, þar sem stiklað er á stóru í máli og myndum úr sögu félagsins á 138 blaðsíðum. Hér fyrir neðan er formáli bókarinnar, sem Guðmundur S. Sveinsson, framkvæmdastjóri Héðins 1983 til 1992, síðar stjórnarformaður til 2016 og Gunnar Pálsson, þróunarstjóri Héðins, skrifa fyrir hönd afmælisnefndarinnar. Bók þessi er gefin út af tilefni af 100 ára afmæli Héðins hf, en fyrirtækið var stofnað 1. nóvember árið 1922. Það voru þeir Bjarni Þorsteinsson og Markús Ívarsson, tveir ungir [...]

Media Coverage of The Art in Héðinn’s Workshop

04/10/2022|

Umfjöllun fjölmiðla um Listin í smiðju Héðins Helstu fjölmiðlar landsins birtu umfjöllun um Listin í smiðju Héðins, samstarfsverkefnis fyrirtækisins og Listasafns Íslands í tilefni af aldarafmæli Héðins. Snorri Másson kom frá fréttastofu Stöðvar 2 og tók viðtal í beinni útsendingu við Halldór Lárusson, stjórnarformann Héðins í kvöldfréttum stöðvarinnar. Fréttastofa RÚV birti innslag í sjónvarpsfréttatímanum klukkan 19. Fréttablaðið var með stóra grein á innsíðu, Morgunblaðið birti ljósmynd frá uppsetningu sýningarinnar á forsíðu laugardagsblaðsins og heilsíðu grein að auki, og Vísir birti tvær geinar sem er hægt að lesa með því að smella á þessa hlekki: Vélsmiðja og myndlist í mögnuðum [...]

Photographs from the Anniversary Exhibition The Art in Héðinn’s Workshop

04/10/2022|

Ljósmyndir frá afmælissýningunni Listin í smiðju Héðins Ljósmyndarinn Snorri Björnsson fangaði þessar stemmningsmyndir á fjölsóttri myndlistarsýningu Héðins og Listasafns Íslands í smiðjum fyrirtækisins við Gjáhellu 4 laugardaginn 1. október. Sýningin stóð stendur aðeins þennan eina dag frá klukkan 13 til 17 og var samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Héðins í tilefni af hundrað ára afmæli Héðins. Verkin sem sýnd voru komu úr úr merkri gjöf fjölskyldu Markúsar Ívarssonar, stofnanda Héðins, til Listasafns Íslands. Meðal sýningargripa voru ýmsar perlur íslenskrar myndlistar frá síðustu öld. Þar af nokkur verk sem höfðu ekki komið fyrir sjónir almennings um langa hríð. Markús Ívarsson (1884-1943) var [...]

Large Crowd at the Art Exhibition in Héðinn’s Workshops at Gjáhella

03/10/2022|

Tæplega þrjú þúsund gestir heimsóttu sýninguna Listin í smiðju Héðins sem var haldin þann 1. október 2022. Sýningin var opin þennan eina dag frá klukkan 13 til 17 í vélasölum fyrirtæksins við Gjáhellu. Viðburðurinn var samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Héðins í tilefni af hundrað ára afmæli fyrirtækisins. Sýnd voru verk úr merkri gjöf fjölskyldu Markúsar Ívarssonar, sem stofnaði Héðin ásamt Bjarna Þorsteinssyni árið 1922. Markús var fæddur 1884. Hann var járnsmiður að mennt og ástríðufullur safnari verka eftir listamenn samtíma síns. Studdi hann þannig meðvitað við ýmist listafólk sem bjó við kröpp kjör við upphaf ferils síns en átti síðar eftir [...]

Matthías Stephensen joins Héðinn

01/09/2022|

Matthías Stephensen til Héðins Matthías Stephensen hefur verið ráðinn fjármálastjóri Héðins. Matthías starfaði áður hjá Arion banka frá 2011, síðast sem forstöðumaður rekstrar og sölu á viðskiptabankasviði, ásamt því að vera innlánastjóri bankans. Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni og sinnir fjölbreyttri þjónustu við sjávarútveg, stóriðjufyrirtæki og orkuframleiðendur. Fyrirtækið var stofnað árið 1922 og fagnar því aldarafmæli á þessu ári. Matthías er með B.S gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á reikningshald og fjármál fyrirtækja, frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í sama fagi. Ráðgjafafyrirtækið Góð samskipti valdi Matthías fyrr á þessu ári á lista yfir 40 öfluga stjórnendur [...]

Go to Top