Hárnákvæmt tímaskipulag í Svartsengi
Héðinn endurnýjar gufuskiljur í skiljustöð HS Orku í Svartsengi. Nákvæmt tímaskipulag og forsmíði lagna tryggja lágmarks niðritíma og auka afköst orkuversins.

Teymi frá Héðni hafa undanfarna mánuði verið að störfum í skiljustöð HS Orku í Svartsengi við umfangsmikla endurnýjun á gufuskiljum stöðvarinnar. Markmiðið er að auka afköst orkuversins og tryggja hagkvæmni í rekstri. Framkvæmdirnar krefjast hárnákvæms tímaskipulags þar sem skiptin fara fram í stuttum, fyrir fram ákveðnum vinnsluhléum svo að vinnsla í orkuverinu stöðvist sem allra styst að sögn Einars Vals Skagfjörð Einarssonar, deildarstjóra sölu- og verkefnastýringar hjá Héðni.
„Nýju skiljurnar eru helmingi afkastameiri og um tvöfalt stærri en þær gömlu – þyngdin fer úr sextán tonnum í heil 32 tonn á hverri skilju. Vegna stærðar nýju tækjanna og mikilvægis þess að lágmarka niðritíma orkuversins krefst verkefnið hárnákvæmrar skipulagningar.“
Fyrsta gamla gufuskiljan var tekin úr rekstri í fyrrasumar. Til þess að verkið gengi sem hraðast á staðnum og þessi 32 tonna búnaður félli fullkomlega að lagnakerfinu voru allar tengilagnir forsmíðaðar á verkstæði Héðins. Í sumar héldu viðamiklar breytingar áfram bæði innan- og utandyra við skiljustöðina, þar sem gamli lagnastamminn utan við stöðina var tekinn úr notkun og nýr, afkastameiri stammi tekinn í notkun sem sömuleiðis var forsmíðaður á verkstæðinu. Á sama tíma var seinni gamla skiljan tekin úr sambandi og nýja skiljan hífð á svæðið.
Uppsetningin fylgir sérstökum áskorunum þar sem lagnagryfjan undir nýja skiljustæðið er ekki tilbúin. Á meðan Ístak lýkur við jarðvegsvinnuna leysir Héðinn málið með því að hýsa þessa 32 tonna skilju tímabundið á sérsmíðuðum búkkum þar til henni verður komið fyrir á endanlegum undirstöðum. Verkefnið er mikilvægur liður í víðtæku og traustu samstarfi Héðins og HS Orku á svæðinu.
Kynntu þér lausnir Héðins fyrir orkuver eða hafðu samband við sérfræðinga okkar til að fá nánari upplýsingar um iðnaðarþjónustu og flókin uppsetningarverkefni.
Héðinn
Industrial engineering and service company
Company updates and historical notes from Héðinn.
