Ástandsskoðun og pökkun á vél frá Bergen Engines fyrir flutning til Seattle.
Sérfræðingur frá skipaþjónustu Héðins stýrði ástandsskoðun og frágangi á 72 tonna Bergen Engines skipavél á Nýja-Sjálandi fyrir bandaríska útgerðarfélagið North Star.

Sigurður Sævar Sigurðsson, þjónustusérfræðingur í skipaþjónustu Héðins, lagði síðastliðið vor í þriggja sólarhringa langt ferðalag til Nýja-Sjálands að ósk bandaríska útgerðarfélagsins North Star Fishing Company. Erindið var að stýra ítarlegri ástandsskoðun á 72 tonna skipavél frá Bergen Engines og gera hana klára til flutnings ef hún stæðist skoðunina. Úttektin leiddi í ljós að vélin reyndist í góðu lagi og var fyllilega tilbúin til flutnings yfir hafið.
Verkefnið fór fram í bænum Nelson á Nýja-Sjálandi, þar sem vélin hafði verið í geymslu eftir að annað bandarískt útgerðarfélag tók hana úr sínu skipi. Sigurður hafði með sér tvo vélstjóra frá North Star Fishing og tók sundurhlutun og frágangur aðeins örfáa daga. Vélinni var komið fyrir í fjórum 40 feta gámum en strípuð vélarblokkin ein og sér vó 22 tonn, sem rétt slapp undir þyngdartakmörk gámaskipsins sem flutti vélina til Seattle þar sem útgerðin ætlar að nýta hana í varahluti.
Upphaf samstarfs Héðins og North Star Fishing Company má rekja til ársins 2021 þegar útgerðin keypti mjölverksmiðju ásamt uppsetningu í flaggskip sitt, North Star. Í kjölfarið fylgdi mannskapur frá Héðni skipinu í nokkra mánuði á miðin við Aljútaeyjar í Beringshafi með heimahöfn í Dutch Harbor á Unalaska-eyju, einu afskekktasta útgerðarsvæði heims. Samstarfið gekk afar vel og hefur bandaríska útgerðin leitað reglulega til skipaþjónustu Héðins síðan þá.
„Þeir komust að því að við gátum útvegað varahluti með miklum hraða og vorum tilbúnir að vaða í öll verk og redda þegar þörf var á,“ segir Sigurður Sævar.
Verkefnið á Nýja-Sjálandi staðfestir þá víðtæku sérþekkingu sem býr í skipaþjónustu Héðins, hvort sem um ræðir ástandsskoðanir, vélaviðgerðir eða þjónustu á afskekktum slóðum. Kynntu þér lausnir okkar í skipaþjónustu Héðins og Bergen-vélaþjónustu eða hafðu samband við sérfræðinga okkar fyrir frekari upplýsingar.
Héðinn
Industrial engineering and service company
Company updates and historical notes from Héðinn.
