Distillers with 20 km of pipes
Eimarar með 20 km af rörum Á undanförnum dögum hafa tvö risastór eimingartæki verið sett upp í nýrri verksmiðju sem er að taka á sig mynd hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað. Í eimingartækin voru þrædd rör sem myndu teygja sig um tuttugu kílómetra ef þau væru lögð saman. Búnaðurinn var hannaður og smíðaður frá grunni hjá Héðni og tók það starfsfólk fyrirtækisins um þrjá mánuði að þræða rörin í tankana og sjóða föst. Rörin voru soðin beggja vegna á platta og alls voru þetta um og yfir fimm þúsund suður. Fyrst var punktsoðið af starfsmanni en svo tók róbóti við [...]











