Project Description
Renniverkstæði
Renniverkstæði Héðins er búið öflugum tækjakosti og reyndu fagfólki með langa reynslu af fjölbreyttum verkefnum. Renniverkstæðið annast nýsmíði, endurnýjun, þjónustu og viðhaldi við spóntöku með fjölbreyttu úrvali af rennibekkjum og fræsivélum. Meðal helstu viðskiptavina eru fyrirtæki í sjávarútvegi, stóriðju, matvælaframleiðslu, orkuframleiðslu og aðrar smiðjur í málmiðnaði. Tækjakosturinn er fjölbreyttur og gerir renniverkstæðinu kleift að leysa stór sem smá verkefni. Tækin eru allt frá tölvustýrðum afkastamiklum fræsivélum og rennibekkjum til handstýrðra tækja sem mörg hver eru með stafrænan álestur.
Hluti tækjabúnaðar
Fræsivélar
Mazak CNC | Upplýsingar |
---|---|
Mazak 5 ása | Tölvustýrðar fræsivélar |
Vinnslusvæði: | 3000x800x720 mm |
Helstu eiginleikar: | Hátækni fræsivélar, stórt vinnslusvæði, vinnsluhraði og nákvæmni. |
Rennibekkir
Mazac CNC | Upplýsingar |
---|---|
Mazak tölvustýrður rennibekkur | Tveggja spindla með lifandi verkfæri og sjálfvirka mötun. |
Helstu stærðir: | 1500 mm milli odda |
Helstu eiginleikar: | Vinnsluhraði, nákvæmni, hægt að fræsa í vinnslunni með lifandi verkfærum. |
Myndir frá renniverkstæði
TENGILIÐIR
Sendu okkur línu
Fylltu út formið