Project Description
Stálsmiðja
Stálsmiðja Héðins, eða Plötudeild eins og hún nefnist í daglegu tali, er umsvifamesta framleiðsludeild fyrirtækisins. Stálsmiðjan sinnir fjölbreyttri þjónustu og nýsmíði, jafnt úr svörtu stáli og ryðfríu. Deildinni er skipt í tvö vinnslusvæði fyrir hvort efnið fyrir sig.
Plötudeild sinnir meðal annars þjónustu við fiskvinnslu, sjávarútveg, stóriðju og orkufyrirtæki. Deildin sinnir einnig verkefnum fyrir aðrar stálsmiðjur.
Af plötuefni á lager má nefna S355, ryðfrítt 304 og 316, Domex355, Hardox 450 og Hardox 500.
Plötuskurður
Plötudeild Héðins er búin þremur skurðarvélum: laserskurðarvél, vatnsskurðarvél og gas/plasma-skurðarvél. Þessar vélar hafa allar ákveðna kosti og eiginleika sem nýtast eftir eðli verkefna hverju sinni. Með því að bjóða upp á þessa valkosti í skurði getum við leyst flest verkefni stór sem smá og þannig tryggt þá úrvals þjónustu sem Héðinn leggur metnað sinn í að veita.
Starfsmenn veita ráð um hentugustu skurðaraðferð eftir verkefni hverju sinni.
Laserskurðarvél
Bystronic | Upplýsingar |
---|---|
Vinnslustærð: | 2000×4000 mm |
Efni: | Ryðfrítt stál, Domex, Hardox, ál, rafgalv o.fl. |
Mesta þykkt: | ≈20 mm |
Helstu eiginleikar: | Vinnsluhraði og nákvæmni |
Vatnsskurðarvél
Omax Maxiem | Upplýsingar |
---|---|
Vinnslustærð: | 1500×3000 mm |
Efni; | Allt mögulegt, ss. málmur, plast, gúmmí o.fl. |
Mesta þykkt: | ≈100 mm |
Helstu eiginleikar: | Nákvæmni, gjalllaust yfirborð, getur skorið nánast hvaða efni sem er og er með hallandi (3-D) skurðarhaus sem býður upp á ný form í plötuskurði. |
Gas/plasma-skurðarvél
Microstep Mastercut | Upplýsingar |
---|---|
Vinnslustærð: | 2500×6000 mm. |
Efni: | Svart stál, Hardox, (ryðfrítt, ál). |
Mesta þykkt: | ≈200 mm |
Helstu eiginleikar: | Vinnsluhraði, hagkvæmni, ræður við mikla þykkt og stór vinnslustærð. |
Frekari vinnsla, valsa, beygja, klippa
Til frekari vinnslu og formunar á plötustáli er Plötudeild Héðins búin völsum, klippum og beygjuvélum, auk smærri verkfæra s.s. suðuvélum, slípivélum, borvélum o.s.frv.
Hér má sjá dæmi um ýmsar vélar og tæki Plötudeildar Héðins. Listinn er síður en svo tæmandi, hafið endilega samband fyrir frekari upplýsingar.
Beygjuvél
Bystronic | Upplýsingar |
---|---|
Mesta lengd: | 4000 mm |
Mesta þykkt: | 10 mm ryðfrítt (per 4000 mm við fulla beygjulengd) |
12 mm svart (per 4000 mm við fulla beygjulengd) | |
16 mm í minni stærðum |
Plötuklippur
Durma | Upplýsingar |
---|---|
Mesta plötubreidd | 3000 mm |
Mesta þykkt: | 10 mm S235 |
8 mm S355 | |
6 mm ryðfrítt |
Plötuslípivél
Til yfirborðsslípunar | Upplýsingar |
---|---|
Mesta plötubreidd | 1500 mm |
Mesta þykkt: | 50 mm |
Efni: | Ryðfrítt eingöngu |
Plötuvalsar
Plötuvalsar af ýmsum stærðum og gerðum sem ná yfir stórt svið af þykktum og stærðum af plötustáli.
Hafið samband til að fá frekari upplýsingar.
TENGILIÐIR
Sendu okkur línu
Fylltu út formið