Eðvarð Ingi Björgvinsson í vélasal Héðins við Gjáhellu í Hafnarfirði. Hann mun starfa við hlið Rögnvaldar Einarssonar núverandi framkvæmdastjóra Héðins fram að áramótum og tekur þá að fullu við starfi framkvæmdastjóra. Ljósmynd/Héðinn, Baldur Kristjánsson

Eðvarð Ingi Björgvinsson kemur heim til Héðins

Eðvarð Ingi Björgvinsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Héðins. Eðvarð þekkir vel til hjá fyrirtækinu en undanfarin ár hefur hann verið framkvæmdastjóri dótturfélags þess Héðinshurða og þar áður stýrði hann Kongsbergdeild Héðins frá árinu 2016 til 2020. Eðvarð mun starfa við hlið Rögnvaldar Einarssonar núverandi framkvæmdastjóra fram að áramótum og tekur þá að fullu við starfi framkvæmdastjóra.

„Við fögnum því að fá Edda heim í móðurfélagið. Hann gjörþekkir hvern krók og kima í starfseminni,“ segir Rögnvaldur Einarsson, framkvæmdastjóri Héðins.

Vélvirkjameistari og framhaldsskólakennari
„Það er mikill heiður að fá að leiða Héðin inn í þá spennandi tíma sem fram undan eru í sjávarútvegi og iðnaði, þá sérstaklega í tengslum við orkuskipti og nýja framleiðslutækni. Fyrirtækið býr yfir gríðarlega mikilli sögu og þekkingu sem mikilvægt er að byggja framtíðina á,“ segir Eðvarð Ingi sem er lærður vélvirkjameistari og framhaldsskólakennari ásamt því að stunda nám við rekstrarfræði í Háskóla Reykjavíkur.

Héðinn annast meðal annars þjónustu á Íslandi fyrir norska fyrirtækið Kongsberg Maritime, þar á meðal sölu búnaðar og lausna frá Kongsberg og Rolls Royce Marine, uppsetningu, endurnýjun, viðhald og viðgerðir véla og vélbúnaðar.

Löng samvinna með Rolls Royce
Héðinn var um árabil umboðsaðili Rolls Royce Marine-skipavéla og rak eina viðurkennda verkstæðið sem Rolls Royce Marine átti ekki sjálft. Árið 2019 rann Rolls Royce Marine inn í Kongsberg Maritime.
Saga samstarfsins við þessa alþjóðlegu iðnrisa í smíði véla og vélbúnaðar fyrir skip spannar meira en sjö áratugi í rekstri Héðins. Upphaf samstarfsins má rekja til þess þegar þjónusta við norsku Brattvaag-spilkerfin hófst árið 1951 en Héðinn framleiddi lengi Brattvaag-spilkerfi með sérstöku leyfi.

Brattvaag og fjöldi þekktra framleiðslu- og þjónustufyrirtækja innan sjávarútvegs, þar á meðal nokkrir af helstu samstarfsaðilum Héðins, runnu saman við Rolls Royce Marine á síðustu öld og eru nú þau öll saman komin undir hatti Kongsberg.

Deildu þessari frétt

Sendu okkur línu

Fylltu út formið

Takk fyrir að hafa samband við Héðinn. Við munum hafa samband fljótlega.
Því miður kom upp villa þegar þú sendir skilaboðin. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.