Iðnaðarþjónusta

Héðinn veitir alla þjónustu á sviði málmiðnaðar og véltækni. Undir iðnaðarþjónustu heyra stálsmíði, renniverkstæði, véladeild og Hardox Wearparts®. Þessar deildir vinna sem ein heild með allri annarri starfsemi fyrirtækisins.

Stálsmíði

Stálsmiðja Héðins, eða Plötudeild eins og hún nefnist í daglegu tali, er helsta framleiðsludeild fyrirtækisins. Deildin sinnir fjölbreyttri þjónustu og nýsmíði í málmiðnaði, jafnt úr svörtu og ryðfríu stáli.

Rennismíði

Renniverkstæði Héðins er ein grunnstoð fyrirtækisins, deildin er búin öflugum tækjakost ásamt mannaforða sem hefur þekkingu og reynslu til að leysa verkefni stór sem smá. Sinnum nýsmíði, þjónustu og viðhaldi við spóntöku.

Stóriðja

Héðinn hf hefur þjónustað stóriðju á íslandi um árabil við hönnun, nýsmíði, viðhald á vélbúnaði og annað tilfallandi. Verkefnin hafa verið fjölbreytt í gegnum árin allt frá hönnun að fullbúnum vélum og búnaði ásamt daglegu viðhaldi.

Hardox

Héðinn hf. er eina íslenska fyrirtækið í „Hardox Wearparts®“ þjónustunetinu. Viðurkenninguna veitir SSAB, framleiðandi Hardox®, fyrirtækjum sem standast ýtrustu kröfur um þekkingu, tækjakost, lager og vinnubrögð við vinnslu á Hardox®.

TENGILIÐIR

Gísli Páll Friðbergsson
Gísli Páll FriðbergssonVerkstjóri
Netfang: gisli@hedinn.is
Símanúmer: 660 2134
Már Árnason
Már ÁrnasonVerkstjóri
Netfang: mar@hedinn.is
Símanúmer: 660 2135
Jón Trausti Guðmundsson
Jón Trausti GuðmundssonDeildarstjóri/framleiðslustjóri
Netfang: jont@hedinn.is
Símanúmer: 660 2119

Sendu okkur línu

Fylltu út formið

Takk fyrir að hafa samband við Héðinn. Við munum hafa samband fljótlega.
Því miður kom upp villa þegar þú sendir skilaboðin. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.