Ljósmyndir frá afmælissýningunni Listin í smiðju Héðins

Ljósmyndarinn Snorri Björnsson fangaði þessar stemmningsmyndir á fjölsóttri myndlistarsýningu Héðins og Listasafns Íslands í smiðjum fyrirtækisins við Gjáhellu 4 laugardaginn 1. október. Sýningin stóð stendur aðeins þennan eina dag frá klukkan 13 til 17 og var samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Héðins í tilefni af hundrað ára afmæli Héðins.

Verkin sem sýnd voru komu úr úr merkri gjöf fjölskyldu Markúsar Ívarssonar, stofnanda Héðins, til Listasafns Íslands. Meðal sýningargripa voru ýmsar perlur íslenskrar myndlistar frá síðustu öld. Þar af nokkur verk sem höfðu ekki komið fyrir sjónir almennings um langa hríð.

Markús Ívarsson (1884-1943) var járnsmiður að mennt og ástríðufullur safnari verka eftir listamenn samtíma síns. Studdi hann þannig meðvitað ýmsa listamenn sem bjuggu við kröpp kjör.

Listamenn sem áttu verk á sýningunni: Ásgrímur Jónsson, Brynjólfur Þórðarson, Eggert M. Laxdal, Eyjólfur Eyfells, Finnur Jónsson, Greta Björnsson, Guðmundur frá Miðdal, Guðmundur Thorsteinsson, Muggur, Gunnar Gunnarsson, Gunnlaugur Scheving, Höskuldur Björnsson, Jóhann Briem, Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson, Karen Agnete Þórarinsson, Snorri Arinbjarnar, Svavar Guðnason, Sveinn Þórarinsson, Þorvaldur Skúlason og Þórarinn B. Þorláksson.

Sýningarteymið af hálfu Listasafns Íslands skipuðu þær Anna Jóhannsdóttir og Nathalie Jacqueminet en sýningarhönnuður var Axel Hrafnkell Jóhannesson.

Deildu þessari frétt

Sendu okkur línu

Fylltu út formið

Takk fyrir að hafa samband við Héðinn. Við munum hafa samband fljótlega.
Því miður kom upp villa þegar þú sendir skilaboðin. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.