1-Gatnamót-Austurstrætis-og-Aðalstrætis-veturinn-1942-43

Fyrsta húsnæði Héðins var í Aðalstræti 6 í húsi sem var byggt árið 1895. Við Aðalstræti reis fyrsta iðnaðarhverfi Reykjavíkur. Í fyrstu var gatan kölluð Hovedgaden, síðar Adelsgaden, þá Klubsgaden en árið 1848 fékk gatan heitið Aðalstræti. Þessi mynd er tekin árið 1942. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

Húsnæði og mannahald

Húsnæði Héðins hefur tekið miklum breytingum í áranna rás. Vélsmiðjan hafði í upphafi um 60 fermetra gólfflöt við Aðalstræti 6b árið 1922, en tuttugu árum síðar, 1942, var smiðjan komin á 489 fermetra við Seljaveg 2. Og þeir urðu enn þá fleiri þegar hið síðar sögufræga Héðinshús reis á lóðinni.

3-Hópmynd-Seljavegi-VIG-0139-A-011-1-1

Héðinshúsið við Seljaveg Hópmynd tekin um 1945 við höfuðstöðvar Héðins við Seljaveg 2. Byggingin hefur alla tíð verið kennd við fyrirtækið. Ljósmynd: Sigurhans Vignir/Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Héðinshúsinu var skipt í deildir eftir verkefnum: Rennismiðju, koparsmiðju, rafsuðu, vélvirkjun, kælilagnir og fleira. Nyrsti hluti byggingarinnar (turnbyggingin) var hins vegar hugsaður fyrir skrifstofur, teiknistofur og vélaafgreiðslu. Á því ári sem Héðinn varð þrítugur, 1952, hafði verksmiðjan til umráða 6.580 fermetra gólfflöt.

Járnsteypan og Héðinshúsið

Járnsteypan og Héðinshúsið Loftmynd af athafnasvæði Héðins við Seljaveg. Húsin með dökku þökunum sem umlykja portið eru smiðjurnar. Í hvítu álmunni til hægri voru skrifstofur á efri hæðum og í kringlunni lengst til hægri var samkomusalurinn frægi Héðinsnaust. Á götuhæð var verslunin og á seinni tímum tók hún einnig yfir aðra hæð sömu byggingar. Járnsteypan var til húsa í hvítu byggingunum til vinstri næst sjónum. Háa húsið þar til hægri var mótasmiðja og starfsmannaaðstaða. Húsið með mörgu strompunum var mótunar- og steypusalur. Húsin nær Seljaveginum voru geymslur og fleira. Ljósmynd: Höfundur óþekktur/Héðinn

Þegar fram liðu stundir hentaði húsnæðið við Seljaveg ekki lengur starfseminni og hún var flutt árið 1989 í húsnæði að Stórási 6 í Garðabæ, þar sem Héðinn hafði rekið útibú í allmörg ár, Garða-Héðin.

Með áherslubreytingum á 21. öld jókst þörf Héðins aftur fyrir nýtt athafnasvæði. Var þá ákveðið að flytja höfuðstöðvar fyrirtækisins úr Garðabæ í Hafnarfjörð, en einnig rekur Héðinn þjónustuverkstæði á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit.

Í febrúar árið 2009 var haldin vígsluhátíð í nýjum húsakynnum að Gjáhellu 4 í Hafnarfirði sem nú telur sjö þúsund fermetra á þrjátíu þúsund fermetra lóð.
Flest varð starfsfólk Héðins 474 talsins árið 1948. Starfsmannafjöldinn hefur verið rokkandi eftir verkefnum en er nú í kringum eitt hundrað manns. Sá fjöldi segir reyndar einungis takmarkaða sögu, því Héðinn hefur samninga við margs konar undirverktaka og breyttar tækniforsendur og viðskiptaumhverfi leiðir til allt annars konar mannahalds en áður. (7

Deildu sögunni

Sendu okkur línu

Fylltu út formið

Takk fyrir að hafa samband við Héðinn. Við munum hafa samband fljótlega.
Því miður kom upp villa þegar þú sendir skilaboðin. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.
25/09/2018|
Go to Top